Update README.md
Browse files
README.md
CHANGED
@@ -6,4 +6,6 @@ language:
|
|
6 |
- is
|
7 |
widget:
|
8 |
- text: "Öngþveiti hefur myndast á flugvöllum víða um heim vegna mikils fjölda ferðamanna og verkfall SAS skapaði enn frekari vandræði fyrir norræna ferðalanga. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að það hafi tekist ágætlega að bregðast við ástandinu. Engu að síður býst hann við því að rekstur flugfélaga verði krefjandi á næstu mánuðum. Ný vandamál komi upp nánast daglega sem þurfi að bregðast við.\nIcelandair fer fyrsta áætlunarflugið frá Stansted-flugvelli í London í dag. Ástandið hefur verið einna verst á Heathrow-flugvelli og hefur Icelandair verið skipað að fella niður flug þangað. Þá keypti félagið sæti í vél Play í síðustu viku vegna vandræða í flota félagsins."
|
|
|
|
|
9 |
---

+
- text: "Hjá MS á Egilsstöðum er framleitt mikið af osti sem aðallega er seldur til pizzugerðar. Aðeins um 10% mjólkurinnar fer í ostinn en hitt rennur frá sem mysa. Lengi vel fór hún lítt hreinsuð í Lagarfljót og enduðu fita, prótín og mjólkursykur í fljótinu. Ekki er langt síðan bæði fita og og mjólkursykur mældust langt yfir starfsleyfismörkum og gerði fyrirtækið úrbætur til að ná fitunni úr frárennslinu en mjólkursykurinn rennur enn út í náttúruna.\nLengi hefur staðið til hjá MS að safna saman 54 milljónum lítra af mysu frá starfsstöðvum sínum og framleiða meðal annars úr henni hreinan vínanda á Sauðárkróki. Ekkert hefur enn orðið af þessu og hefur heilbrigðiseftirlit Austurlands enn og aftur krafið fyrirtækið um að ljúka úrbótum. Fyrirtækinu verður gert að taka sýni úr fráveitunni í byrjun sumars. Í samtali við Austurfrétt segir rekstrarstjóri hjá MS að ekki hafi verið hægt að opna verksmiðjuna á Sauðárkróki vegna tafa sem meðal annars megi rekja til Covid. Vonir standi til að starfsemin fari í gang síðla árs.\nMikið af mjólkursykri rennur enn í Lagarfljót frá starfsstöð MS á Egilsstöðum. Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur í mörg ár beint því til fyrirtækisins að bæta hreinsun á fráveitu."
|
10 |
+
- text: "Það spáir suðlægri átt og hita á bilinu fimm til fimmtán stig í dag og á morgun og hlýjast verður á austanverðu landinu. Við þessar aðstæður getur skapast snjóflóðahætta, sérstaklega þar sem nýlega hefur snjóað. Harpa Grímsdóttir, hópstjóri ofanflóðavöktunar hjá Veðurstofunni, segir að því þurfi að fylgjast vel með snjóalögum. Talsverður snjór féll á Tröllaskaga fyrir fáeinum dögum og þar er hættan einna mest. Sérstaklega við veginn um Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarveg. Harpa segir ekkert hafa skriðið af stað enn þá en það sjáist kögglahrun og hreyfingar á yfirborði. Það sé bót í máli að ekki rigni þar sem snjórinn er mestur en við langvarandi hlýindi sé hætta á krapaflóðum. Það er minni snjór á Vestfjörðum og hættan þar því ekki mikil, að sögn Hörpu. Á Austfjörðum sé lengra síðan snjóaði og það hjálpi til. Í snjóflóðaspá Veðustofunnar er sögð töluverð flóðahætta á norðanverðum Vestfjörðum, utanverðum Tröllaskaga og Austfjörðum. Harpa hvetur fólk sem er á ferð á fjöllun til að fara varlega."
|
11 |
---
|